Erlent

Gagnrýna skeflilegt efnahagsástand í Rússlandi

Hópur Bolsévika braust inn í rússneska fjármálaráðuneytið í morgun til að mótmæla efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Mótmælendurnir hlekkjuðu sig við glugga á nokkrum hæðum byggingarinnar og slepptu bæklingum þar sem ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir skelfilegt efnahagsástand og fátækt í landinu. Óeirðalögreglu tókst á endanum að losa mótmælendurna, en þessi hópur hefur gert víðreist um Moskvu í svipuðum erindagjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×