Erlent

Lítill drengur þungt haldinn eftir árás Rottweiler hunds

 

Fjórtán mánaða drengur liggur þungt haldin á spítala í Sussex á Englandi eftir að Rottweiler hundur réðst á hann. Ástand hans er þó stöðugt og hann er ekki talinn í lífshættu.

Drengurinn er þakin bitum og skurðum eftir árás hundsins. Aðeins eru fáeinir dagar síðan að fimm mánaða stúlka lést af sárum sínum eftir árás tveggja Rottweiler hunda í Leicester á Englandi.

Eigandi hundins sem réðst á drenginn hefur samþykkt að láta svæfa hundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×