Vöruskipti óhagstæð um 11,6 milljarða 28. september 2006 09:54
Vöruskipti voru óhagstæð um 11,6 milljarða krónur í ágústmánuði. Þetta er 3,2 milljörðum krónum minna en á sama tíma fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru vöruskipti hins vegar neikvæð um 63,4 milljarða krónur sem er 31,2 milljörðum krónum meira en á fyrstu átta mánuðum síðasta árs. Vörur voru fluttar út fyrir 16,6 milljarða krónur í síðasta mánuði en inn fyrir 28,2 milljarða krónur. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru vörur fluttar út fyrir 150,9 milljarða krónur en inn fyrir 245,5 milljarða. Verðmæti útflutnings á fyrstu átta mánuðum ársins nam 8,3 milljörðum króna eða 5,9 prósentum meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarútvegur var 55,1 prósent alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 1,8 prósent á milli ára. Aukning varð í útflutningi á ferskum fiski, frystum flökum og söltum en útflutningur á fiskimjöli og frystum rækjum dróst saman. Þá námu iðnaðarvörur 38 prósentum alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 19,4 prósent á milli ára. Verðmæti innflutnings nam 39,5 milljörðum króna á sama tímabili en það er 19,2 prósentum meira á föstu gengi en árið áður. Rúman helming 21,1 milljarð króna, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 45,8 prósent á milli ára. Þá jókst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum um 33,7 prósent eða um 16,7 milljarða krónur. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 16,7 prósenta aukningar eða um 3 milljarða króna hækkunar á milli ára.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira