Erlent

Minnst 3 skólastúlkur myrtar í Pennsylvaníu

Að minnsta kosti þrír eru sagðir hafa týnt lífi og sjö særst þegar byssumaður skaut á skólastúlkur í skóla Amish-fólks í smábæ í Pennsylvaniu-ríki í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Allar stúlkurnar voru á aldrinum 6 til 13 ára.

Lögregla hefur umkringt skólabygginguna en í henni er ein skólastofa.

Talsmaður lögreglunnar í Pennsylvaníu sagði í samtali við BBC að maðurinn hafi gengið inn í skólastofu, skipað sumum nemendum að hafa sig á brott en sagt öðrum að verða eftir. Síðan hafi hann skotið þá nemendur sem eftir voru í höfuðið áður en hann svipti sig lífi.

Skólayfirvöld í Bandaríkjunum hafa verið á varðbergi síðan skotárásir voru gerðar á skóla í Wisconsin og Colorado í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×