Erlent

Flugvél nauðlent í Teheran

Farþegaflugvél var nauðlent á Mehrabad-flugvelli í Teheran, höfuðborg Írans, í dag. Íranska fréttastofan Fars segir að kviknað hafi í hreyfli flugvélarinnar og því hafi henni verið nauðlent. Sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang. Flugmálayfirvöld þar í borg segja ekkert hæft í þeim fullyrðingum.

Flugmaður hafi orðið var við tæknilegt vandamál og talið nauðsynlegt að nauðlenda vélinni. Starfsmaður Iran Air, félagsins sem gerir vélina út, staðfesti þetta og segir engan eld hafa kviknað í vélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×