Erlent

Ótrúleg heppni

Þrettán mánaða gamall drengur slapp á ótrúlegan hátt við öll meiðsli, þegar fellibylur feykti vöggu hans eitthundruð og fimmtíu metra, í Vietnam, á dögunum.

Vaggan hafði verið hengd niður úr loftbita á heimilinu. Fellibylurinn reif þakið af húsinu og feykti því, ásamt vöggunni, yfir þriggja hæða nærliggjandi hús, og út á akur. Þar fannst vaggan í andapolli, og í henni lá litli snáðinn og hjalaði við sjálfan sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×