Erlent

Myrti aldraða sjúklinga

MYND/AP

Fyrrverandi hjúkrunarkona á sjúkrahúsi í Texas í Bandaríkjunum gekkst við því fyrir dómi í dag að hafa myrt 10 aldraða sjúklinga í hennar umsjá fyrir nærri sex árum.

Vicki Dawn Jackson, sem er 40 ára, mun hafa sprautað sjúklinga sína með efni sem lamaði öndunarfæri þeirra. Búist er við að hún verði fangelsuð fyrir lífstíð en ekki verður gerð krafa um dauðadóm. Ekki er vitað hvaða ástæða lág að baki ódæðunum.

Verjandi Jackson segir að hún hafi ákveðið að andmæla ekki ákærunni til að forða dóttur sinni frá því að þurfa að bera vitni fyrir dómi gegn sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×