Erlent

Stutt í að ljósmyndari AP verði látinn laus

Ljósmynd sem Emilio Morenatti, ljósmyndari AP, tók á Gaza-svæðinu í gær. Morenatti var rænt í dag.
Ljósmynd sem Emilio Morenatti, ljósmyndari AP, tók á Gaza-svæðinu í gær. Morenatti var rænt í dag. MYND/AP

Útlit er fyrir því að ljósmyndari Associated Press, sem rænt var á Gaza-svæðinu í dag, verði látinn laus innan stundar. Reuters-fréttastofan hefur þetta eftir háttsettum palestínskum fulltrúa.

Tawfiq Abu Khoussa, talsmaður Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, segir ljósmyndarann, Emilio Morenatti, á öruggum stað og stutt sé í að hann fái frelsi á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×