Erlent

Sýndi frúnni fingurinn

Austurrískur maður gaf hugtakinu "að sýna fingurinn" nýja merkingu, eftir hatramar deilur í skilnaðarmáli. Hann skar af sér baugfingurinn og rétti hann að konu sinni, með giftingahringinn ennþá á.

Fyrir þetta var maðurinn var ákærður fyrir hættulegt áreiti og ofbeldi. Austurríska fréttastofan APA segir að þegar karl hinn fingurlausi kom fyrir dómara hafi hann einskis iðrast. Þetta hafi verið hans leið til þess að brjótast úr viðjum hjónabandsins.

Maðurinn sagði að hann saknaði ekki fingurins og kæmist ágætlega af án hans í vinnunni. Þá ætlaði hann ekki að kvænast á nýjan leik, og þyrfti því ekki fingurinn til þess heldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×