Innlent

Guðbjartur Hannesson efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi

Guðbjartur Hannesson skólastjóri á Akranesi varð efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Noðrvesturkjördæmi, sem lauk í gær. Séra Karl V. Matthíasson varð í örðu sæti, Anna Kristín Gunnarsdóttir í þriðja og Sigurður Pétursson í fjórða.

Aðeins var kosið um fjögur efstu sætin, en allir frambjóðendurnir sóttust eftir fyrsta sætinu. Jóhann Ársælsson skipaði fyrsta sætið fyrir síðustu kosningar, en hann gefur ekki kost á sér nú. Anna Krístín var í öðru sæti, en lendir nú í þriðja. Samfylkingin hefur tvo þingmenn í kjördæminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×