Erlent

Ástralir neita að breyta stefnu í umhverfismálum

Ástralska ríkisstjórnin hafnaði því í morgun að gera breytingar á umhverfisstefnu sinni þrátt fyrir ákall Tony Blair til ríkja heimsins að draga úr mengun.

Fjármálaráðherra Ástralíu, Peter Costello, dró í efa fullyrðingar höfunda skýrslu um umhverfismál, sem kom út í gær, að gróðurhúsaáhrif væru mestu mistök sem markaðurinn hefði nokkurn tíman gert. Hann bætti því við að Ástralir hefðu tilkynnt í síðustu viku að þeir hefðu hafið vinnu við ýmsar úrbætur á sviði umhverfismála og þar á meðal væri stærsta sólarorkuverkefni í heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×