Erlent

Stórabeltisbrúnni lokað vegna óveðurs

Mikið óveður er nú í Danmörku og Svíþjóð, og er veðurhæðin slík að brúnni yfir Stórabelti hefur verið lokað og ferjusiglingum víða hætt.

Ekki er búist við að brúin verði opnuð fyrr en líður á daginn. Nokkrar ferjur, sem höfðu siglt áður en veðrið var alveg brjálað, þurfa að halda sjó fyrir utan hafnir, þar sem það er of hvasst fyrir þær að leggjast að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×