Erlent

Bókunum á ferðum til Íslands fækkar

Minna er um bókanir á Íslandsferðum vegna hvalveiða Íslendinga.
Minna er um bókanir á Íslandsferðum vegna hvalveiða Íslendinga. MYND/Kjartan

Breskum ferðamönnum á leið til Íslands á vegum ferðaskrifstofunnar Discover the World hefur fækkað um allt að 25% síðan hvalveiðar hófust. Þetta kemur fram á vefsíðu enska dagblaðsins Times í morgun.

Talsmaður skrifstofunnar segir að ekki sé mikið um afpantanir, heldur hafi dregið stórlega úr nýjum pöntunum, miðað við áætlanir. Umhverfisverndarsinnar hafa líka sett upp vefsíðu á Ebay þar sem þeir reyna að safna fyrir andvirði hvals og kaupa hann, áður en hann verður veiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×