Erlent

Guðfaðir korsísku mafíunnar lætur lífið

Jean-Baptiste Colonna, "hinn eini sanni guðfaðir korsísku mafíunnar" samkvæmt rannsóknarskýrslu franska þingsins, lést í bílslysi á Korsíku í gærkvöld.

Sterkur grunur lék á að hann tengdist heróínsmyglhringnum marg fræga: French connection, sem smyglaði gríðarlegu magni af heróíni til Bandaríkjanna á árunum 1937-1973 en hann var sýknaður eftir áfrýjun.

Hann var 67 ára að aldri og er jafnvel talið að hann hafi fengið hjartaáfall undir stýri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×