Körfubolti

Stórt tap hjá Haukum

Haukastúlkur fengu skell í lokaleik sínum í Evrópukeppninni á Ásvöllum í kvöld
Haukastúlkur fengu skell í lokaleik sínum í Evrópukeppninni á Ásvöllum í kvöld mynd/anton brink
Kvennalið Hauka hefur lokið þátttöku sinni í Evrópukeppninni í körfubolta þennan veturinn en í kvöld steinlá liðið á heimavelli fyrir ítalska liðinu Parma 117-58 eftir að hafa verið undir 69-18 í hálfleik. Ifeoma Okonkwo skoraði 19 stig fyrir Hauka og Helena Sverrisdóttir 15 stig. Haukar töpuðu öllum leikjum sínum í riðlinum og eru úr leik, en þetta unga lið hefur sannarlega fengið dýrmæta reynslu úr þessum erfiðu leikjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×