Körfubolti

Trump sakar LeBron um að sýna Banda­ríkjunum van­virðingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James sést hér í fyrsta leik sínum sem leikmaður Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta.
LeBron James sést hér í fyrsta leik sínum sem leikmaður Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta. AP/Frank Franklin II

Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði körfuboltamanninn LeBron James um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu í þjóðsöngnum fyrir fyrsta leik Philadelphia 76ers á tímabilinu sem var gegn New York Knicks í New York á þriðjudag.

Í stað þess að standa kyrr og hlusta á þjóðsönginn virtist stigahæsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta halda áfram að hita upp á meðan þjóðsöngurinn var fluttur.

James virtist æfa golfsveiflu og stökkskot á meðan „The Star-Spangled Banner“-söngurinn var leikinn í Madison Square Garden. James, sem lék sinn fyrsta leik fyrir 76ers, stóð í röð við hlið liðsfélaga sinna sem flestir stóðu kyrrir á meðan þjóðsöngurinn var fluttur.

„Ég sagði strax frá upphafi að hann væri ómögulegur, algjör skömm,“ sagði Trump um James í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann deildi myndbandinu. „LeBron James ætti að biðja alla þá miklu bandarísku stríðsmenn og hetjur sem létu lífið fyrir bandaríska fánann, og allt sem landið okkar stendur fyrir, afsökunar,“ skrifaði Trump.

James, sem er 41 árs og leikur sitt 24. tímabil í NBA, sem er met.

Trump hefur sjálfur einnig verið gagnrýndur fyrir framkomu sína á meðan þjóðsöngurinn er fluttur. Árið 2020 birti Miami Herald myndband af Trump þar sem hann veifaði höndunum eins og hann væri að stjórna hljómsveit á meðan þjóðsöngurinn var leikinn í Super Bowl-áhorfsteiti. Í stuttu myndskeiðinu virtist Trump einnig benda á aðra á meðan þeir sem í kringum hann voru stóðu með hönd á hjarta á meðan þjóðsöngurinn var leikinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×