Gera stuttmynd um miðaldra mann sem fær sér kúrekastígvél 2. janúar 2007 11:30 Hafsteinn Gunnar Sigurðsson undirbýr tökur á stuttmynd eftir handriti Huldars Breiðfjörð. MYND/Rósa
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, nemi í kvikmyndaleikstjórn og handritsgerð við Columbia University í New York, er að vinna að spennandi verkefni um þessar mundir. Nú í janúar hefjast tökur á stuttmynd í leikstjórn Hafsteins en höfundur handrits er Huldar Breiðfjörð sem einnig er við kvikmyndanám í New York. „Myndin heitir Skröltormar og við Huldar erum búnir að ganga með hana nokkuð lengi í maganum. Við ákváðum loks að kýla á þetta og sóttum um hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands og vorum að fá styrk sem gerir þetta að veruleika. Það er frábært að hafa svona verkefni að takast á við enda er það vinnan sem maður lærir mest af í þessum bransa," segir Hafsteinn sem vinnur að undirbúningi fyrir myndina þessa dagana. Tökur verða í Reykjavík í janúar og framleiðendur myndarinnar eru Mistery Ísland og meðframleiðandi er Zik Zak kvikmyndagerð. Huldar Breiðfjörð.„Þetta er stærsta verkefni sem ég hef unnið að sem leikstjóri svona umfangslega séð en þetta verður um 30 mínútna stuttmynd. Ég hef líka mikla trú á þessu handriti enda frábært að vinna með Huldari. Myndin segir sögu Antons, miðaldra bílasala sem hefur löngum látið sig dreyma um að eignast kúrekastígvél. Þegar hann sér Rúna Júl í sjónvarpinu í kúrekastígvélum þá lætur hann verða af því að fá sér flott kúrekastígvél, lætur drauminn rætast ef svo má segja. Myndin segir svo að miklu leyti frá viðbrögðum fólksins í kringum Anton við kúrekastígvélunum sem hann vill helst vera í öllum stundum. Eiginkona Antons, vinnufélagar og vinir hafa öll sína skoðun á þessari einmenningstísku Antons sem syndir ótrauður gegn straumnum, líklega í fyrsta sinn um ævina. Ég vil helst ekki segja meira um söguþráðinn en vísa til þess að þetta verður mannleg en meinfyndin og lágstemmd kómedía sem fjallar um það hvernig minnstu hlutir geta komið róti á vanabundið líf fólks og dregið fram þætti í fari þess sem að öllu jöfnu lítið ber á."Rúni Júl er fyrirmynd sögupersónunnar Antons, sem kaupir sér kúrekastígvél eftir að hann sér Rúna í einum slíkum.Það verður úrval íslenskra leikara í helstu hlutverkum í Skröltormum en Jóhann Sigurðarson fer með hlutverk Antons og í öðrum helstu hlutverkum er að finna Sigurð Skúlason, Pétur Einarsson, Svein Ólaf Gunnarsson og Lilju Þórisdóttur. „Það færir mér ómetanlega reynslu að vinna með þessu fólki, sérstaklega þar sem þetta er svona leikaramynd ef svo má segja, en auk þeirra bregður Rúnari Júlíussyni fyrir í myndinni. Rúnar og Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður verða með tónlistina ásamt hljómsveitinni Flís. Það verður sem sagt allt vaðandi í frábæru fólki þarna í kringum mig og ég hlakka mikið til." Hafsteinn Gunnar staldrar ekki lengi við þar sem hann er á leiðinni aftur til New York strax að loknum tökum. „Já ég kem til með að klára myndina úti þar sem ég klippi með félaga mínum Kristjáni Loðmfjörð klippara. Við Kristján höfum verið lengi saman í þessu kvikmyndastússi og unnið að ýmsum verkefnum. Skröltormar verður svo tilbúin til sýninga í vor hér heima og fer vonandi á einhverjar stuttmyndahátíðir í framhaldinu af því."
Mest lesið „Ég er búin að sætta mig við að ég mun líklega aldrei fá nein svör“ Lífið Stjörnustjarfur með David Schwimmer og Will Ferrell Lífið Maríanna og Dommi trúlofuð Lífið Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Tónlist Fréttatía vikunnar: Leynigestur, brottvísanir og ofurfyrirsæta Lífið Fimm lög keppa í Söngvakeppninni í kvöld Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Aðstoðarmennirnir og ástin Lífið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Fleiri fréttir Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira