Bíó og sjónvarp

Streep í Mamma Mia!

Óskarsverðlaunaleikkonan mun leika aðalhlutverkið í söngleiknum Mamma Mia!
Óskarsverðlaunaleikkonan mun leika aðalhlutverkið í söngleiknum Mamma Mia!

Óskarsverðlaunaleikkonan Meryl Streep mun leika aðalhlutverkið í söngvamyndinni Mamma Mia! sem er byggð á samnefndum söngleik sem hefur notið mikilla vinsælda.

„Streep var alltaf efst á óskalistanum hjá okkur,“ sagði Judy Craymer, framleiðandi myndarinnar. „Hún hefur rétta hugarfarið og orkuna sem persóna hennar þarf á að halda.“

Mamma Mia! hefur að geyma tónlist eftir sænsku hljómsveitina ABBA. Lagahöfundar sveitarinnar, Björn Ulvaeus og Benny Anderson, verða aðstoðarframleiðendur myndarinnar. Hefjast tökur á henni síðar á þessu ári í London. Fyrirtæki Tom Hanks mun framleiða myndina og er vonast til að hún verði frumsýnd á tíu ára afmæli söngleiksins árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.