Lífið - notkunarreglur - fjórar stjörnur 28. mars 2007 00:01 Skondin og hrífandi sýning með frábærri músík.
Sýningin Lífið - notkunarreglur er ævintýri með söngvum sem gerist í skógi þar sem óræð en kunnugleg lögmál gilda. Verkið er lokaverkefni Nemendaleikhússins en í því leika einnig félagar úr Leikfélagi Akureyrar. Þetta er afar skemmtilega spekingslegt verk sem ber nokkuð sterk höfundareinkenni. Þarna hrynja stærstu spurningar lífsins af vörum áttlausra persóna sem staddar eru í óskilgreindum skógi, þær eru flestar á leiðinni „eitthvað annað og meira“ en allar búa þær yfir einhverjum hæfileikum eða sérþekkingu sem þær skýla sér á bak við. Viðfangsefni verksins mætti draga saman í eina spurningu: Hvað er lífið meira en endalaust óöryggi? Persónurnar þrettán eiga í öllum tegundum samskipta, finna hver aðra og týna, sýna skilning, ástúð og grimmd í þessum míkrókosmos af veröldinni. Viðfangsefnið er þetta „óttalega“ líf, klassískar forhugmyndir um hvernig það á að vera, hræðslan við misskilning eða það að vera öðruvísi. Ástin og ofbeldið kemur líka við sögu, ásamt fleiri líkamlegum kenndum á borð við svengd. Verkið er dálítið móralskt á velmeinandi hátt og afhjúpandi líkt og fyrri verk leikskáldsins Þorvalds Þorsteinssonar. Þekktasta leikrit hans er líklegast ...And Björk, of Course. Líkt og það verk er Lífið - notkunarreglur um óskilgreindar ætlanir, tengslaleysi og persónulega vanþekkingu. Textinn er glaðhlakkalegur og hátimbraður til skiptis. Það er mikill leikur í tungumálinu, sem verður að teljast aðall höfundarins, en leikararnir nýta sér hann óspart. Stundum komst textinn ekki alveg nógu vel til skila eða týndist í atganginum því það gengur jú ýmislegt á í lífinu. Ég skil hins vegar ekki titilinn ennþá og velti enn fyrir mér hvaða reglur er átt við í honum. Leikstjórinn Kjartan Ragnarsson vinnur úr þessum kræsilega efniviði ásamt sínu fólki og skapar forvitnilega og manneskjulega sýningu sem skilur mikið eftir sig. Hitt er þó að mér fannst galli hversu langan tíma það tók að komast inn í verkið eða skilja í hvaða veröld það gerist. Í svo lýðræðislega skrifuðu stykki er ekki sanngjarnt að hampa einum um of en ég verð að minnast á Vigni Rafn Valþórsson sem var framúrskarandi skemmtilegur í hlutverki uppfinningastráksins Huga. Það verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Anna Svava Knútsdóttir var líka heillandi og grátbrosleg sem hreindýrið og samferðakonan Bjalla og dramadrottningin Gola var afar skemmtileg í meðförum Kristínar Þóru Haraldsdóttur. Söngnúmer Bjarna Snæbjörnssonar og fyrrgreindra Önnu, Kristínar og hinnar hæfileikaríku Söru Marti Guðmundsdóttur, líður líka seint úr minni. Tónlist Megasar er algjört afbragð og textarnir nokkuð lunknir líka. Í það minnsta fylgdi tónlistin manni út í kvöldið og leitaði á mann aftur daginn eftir. Umgjörðin sem tónlistin skapar hefur meira vægi en nokkur leikmynd og leikarar og leikaraefni fara vel með sitt, hvert með sínu nefi þó, sem og hljómsveitin. Þetta er mjög áheyrileg tónlist sem ég vona innilega að rati einhvern tíma á hljómdisk. Það fer ágætlega um uppfærsluna í Rýminu en plássið býður þó ekki upp á mikið sjónarspil og var full þröngt á köflum. Leikmunir og búningar eru litríkir og skondnir en full bosmamiklir í þrengslunum. Þetta er sómasýning og fengur að nýju íslensku leikriti og frábærri músík. Frammistaða félaga Nemendaleikhússins gefur líka tilefni til frekari bjartsýni. Kristrún Heiða Hauksdóttir
Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Fleiri fréttir Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Sjá meira