Flugvöllur á floti í Vatnsmýri 30. júní 2007 06:30 Nýting lands í Vatnsmýrinni í Reykjavík er lykilatriði þegar horft er til framtíðar í skipulagi og uppbyggingu í höfuðborginni. Þess vegna sætir nokkurri furðu hversu illa gengur að fá ráðamenn, bæði ríkis og borgar, til að taka af skarið og móta stefnu sem fylgja skal um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. Ekki eru nema níu ár þar til það aðalskipulag sem í gildi er rennur út. Í Reykjavík hefur þegar farið fram atkvæðagreiðsla sem kynnt var sem bindandi og gerði út um það að flugvöllurinn ætti að hverfa úr Vatnsmýri árið 2016. Engin framvinda hefur þó orðið í þá átt. Þvert á móti er unnið að undirbúningi að byggingu nýrrar samgöngumiðstöðvar í mýrinni, eins og engu skipti hvort sú miðstöð eigi að þjóna heilum flugvelli eður ei. Alls konar hugmyndir eru einnig á lofti um uppbyggingu í tengslum við flugvöllinn í Vatnsmýri, nú síðast ósk flugfélags um að fá að byggja flugstöð, meðal annars til að þjóna millilandaflugi um Reykjavíkurflugvöll. Sem sagt áform um aukningu á flugi um völlinn. Framtíð flugvallarins er pólitískt viðkvæmt mál. Skoðanir fólks á því hvort á að vera flugvöllur eða byggð í Vatnsmýri skiptast ekki eftir hinum hefðbundnu flokkalínum. Svo virðist sem óttinn við að styggja kjósendur ráði því að enginn þori að taka af skarið í þessu máli. Fyrrum samgönguráðherra fór raunar ekki leynt með skoðanir sínar á framtíð flugvallarins í Vatnsmýri sem fór í bága við yfirlýsta stefnu borgarinnar, að minnsta kosti þess meirihluta sem felldur var í fyrra. Óljósari eru skoðanir eftirmanns hans í ráðuneytinu en hafa verður í huga að Kristján er landsbyggðarþingmaður eins og Sturla. Framtíð flugvallarins var hvorki meira né minna en eitt aðalkosningamálið fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í fyrra. Illa gekk sem fyrr að ná stefnu upp úr flestum frambjóðendum en þegar upp var staðið var það einungis Frjálslyndi flokkurinn sem afdráttarlaust vildi halda flugvellinum á sínum stað. Því verður ekki annað séð en að nýr meirihluti í Reykjavík hljóti að hafa sömu stefnu um framtíð flugvallarins og sá fyrri. Um hana fer hins vegar afar hljótt og ekkert hefur gerst í málefnum flugvallarins síðan nýi meirihlutinn tók við. Svo einfalt er það. Framtíð flugvallarins skiptir miklu máli fyrir þjóðina alla. Hún skiptir fyrst og fremst máli fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins vegna þeirrar gífurlegu breytingar sem það hefði í för með sér að það landflæmi sem nú er undir flugvellinum breyttist í byggingarland. Framtíð flugvallarins skiptir máli fyrir notendur innanlandsflugs, hún skiptir máli í tengslum við uppbyggingu sjúkrahússins við Hringbraut og svo mætti áfram telja. Það hlýtur því að vera skýlaus krafa að ráðamenn ríkis og borgar taki hendur úr vösum og móti stefnu um framtíð Vatnsmýrarinnar í Reykjavík. Í þessu máli verður stjórnmálamönnum að takast að tala sig niður á lausn. Tíminn flýgur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Steinunn Stefánsdóttir Mest lesið Skjaldborg um sjöfaldan veikindarétt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Kona á öld hrottans Bjarni Karlsson Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson Skoðun Kæri Runólfur Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun „Ég vissi ekki“ Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Noregur er bara betri áfangastaður! Bjarki Gunnarsson Skoðun Tilraun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu Magnús Þór Jónsson Skoðun Lygin um kynbundið ofbeldi og jafnréttisbrot gegn karlmönnum Huginn Þór Grétarsson Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz Skoðun Halldór 21.02.2026 Halldór