Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson og Jónas Guðnason skrifa 26. október 2026 10:02 Við sem búum í Hveragerði þekkjum nálægðina við orkuvinnsluna manna best. Við sjáum gufubólstrana rísa upp frá Hellisheiðarvirkjun, Hverahlíð og Folaldahálsi. Auk þess er jarðvarmavirkjun við Bolaöldu í orkunýtingarflokki rammaáætlunar, sem er enn ein virkjunin í okkar nærumhverfi. Flest höfum við fundið jörðina skjálfa undan niðurdælingunni við Hellisheiðarvirkjun. Við lóð leikskólans Óskalands stendur mælir sem fylgist daglega með brennisteinsvetni og loftgæðum. Nálægðin er ekki fræðileg umræða hjá okkur – hún er hluti af okkar daglega lífi. Hvíta gatið á kortinu: Þegar fólk er klippt út Þess vegna eru það mikil vonbrigði að rýna í reiknilíkanið sem fylgir nýju frumvarpi um fasteignaskatt á orkumannvirki. Yfirlýst markmið frumvarpsins er að skila tekjum af virkjunum til þeirra nærsamfélaga sem bera af þeim umhverfis- og nágrennisáhrif. Vandinn er hins vegar sá að reiknilíkanið í núverandi mynd mælir þessi áhrif á auð landsvæði frekar en þéttbýli og fólk. Samkvæmt útreikningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fengi Hveragerði einungis um 1% af skatttekjum Hellisheiðarvirkjunar, eða tæpar 6,2 milljónir króna á ári. Á sama tíma fengju sveitarfélög eins og Kópavogur og Mosfellsbær samanlagt yfir 86 milljónir króna úr sama potti. Íbúar í þeim þéttbýliskjörnum finna varla fyrir manngerðum jarðskjálftum. Þeirra sveitarfélög fá þessa hlutdeild einfaldlega vegna þess að þau eiga víðfeðmt land uppi á heiðum. Á sama tíma er 100% af landsvæði Hveragerðis innan 15 km áhrifasvæðis Hellisheiðarvirkjunar. Meðfylgjandi mynd úr reiknilíkaninu segir í raun alla söguna. Bláu punktarnir á kortinu sýna áhrifasvæði Hellisheiðarvirkjunar með 15 km radíus, sem skilar milljónum til óbyggðra heiðarlanda, en Hveragerði (hvíta gatið) er klippt út. Tvær einfaldar og sanngjarnar leiðréttingar Þessu þarf að breyta á Alþingi áður en frumvarpið verður að lögum. Lausnin er í grunninn einföld og felst í tveimur atriðum: Fella þarf niður 5% þröskuldinn í reiknilíkaninu. Eins og Samtök orkusveitarfélaga hafa bent á á hann sér enga stoð í lagatexta frumvarpsins og kemur beinlínis í veg fyrir að landlítil sveitarfélög fái réttmæta hlutdeild. Lögfesta þarf þéttbýlisstuðul í frumvarpinu. Í dag fá uppistöðulón vatnsaflsvirkjana tífalt vægi hjá ríkinu. Með sama hætti er sjálfsögð krafa að afmarkað þéttbýli innan grunnáhrifasvæðis orkumannvirkja fái tífalt vægi á við óbyggð svæði. Við höfum fylgt þessu máli eftir af krafti á síðustu vikum. Fulltrúi Okkar Hveragerðis vakti athygli á því hversu gríðarlegt hagsmunamál það er fyrir Hvergerðinga að sækjast eftir aðild að Samtökum orkusveitarfélaga. Í kjölfarið boðaði bæjarstjórn Harald Þór Jónsson, formann Samtaka orkusveitarfélaga, á sinn fund. Þá höfum við kynnt málið og tillögur okkar fyrir öllum þingmönnum Suðurkjördæmis. Framtíðarsýn á sögulegum grunni Það er nákvæmlega vegna þessara miklu hagsmuna sem Hveragerði þarf að vera virkur þátttakandi í Samtökum orkusveitarfélaga. Bærinn okkar byggðist upp á þessari auðlind og Hveragerði var eitt af fyrstu svæðunum á Íslandi sem nýttu jarðhitann. Við erum því ekki bara bær sem tekur við umhverfisáhrifum af orkuvinnslu í dag – við erum ákveðin vagga hennar. Á þessum sögulega grunni eigum við að stíga næstu skref. Við eigum að nýta nálægðina við auðlindina til að gera Hveragerði aftur að framverði í jarðhitamálum; að miðstöð þekkingar, nýsköpunar og jarðvarmarannsókna. En til að sú framtíðarsýn verði að veruleika þarf Hveragerði að fá sanngjarna hlutdeild í þeim tekjum sem verða til í nærumhverfi okkar. Það er ekki bara einfalt réttlætismál fyrir okkur sem hér búum, heldur sjálfsögð fjárfesting í framtíð bæjarins. Lárus er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis og Jónas er jarðfræðingur og varabæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun