Samadrama fresta enn 18. ágúst 2007 05:45 Karl Júlíusson er í stöðugri vinnu sem útlitshönnuður á stórum verkum virtra leikstjóra.
Vandamál steðja að norska leikstjóranum Niels Gaup sem gerði hina eftirminnilegu mynd Leiðsögumanninn, með Helga Skúlasyni. Hann er nú að ljúka við stóra mynd, Kautokeino-uppreisnina, og ætlaði að frumsýna í apríl en þá varð frestun. Þá ætlaði hann að frumsýna í ágúst en verður að fresta og hefur verið tilkynnt að myndina beri ekki fyrir augu áhorfenda fyrr en í janúar á næsta ári, en hún verður opnunarmynd á kvikmyndahátíðinni í Tromsö 15. janúar og fer síðan í almenna dreifingu í Noregi 18. janúar. Það er Karl Júlíusson sem sér um útlit myndarinnar sem gerist á nítjándu öld og fjallar um stormasama sambúð sama og norskra yfirvalda sem leiddi til uppreisnar og voru tveir leiðtogar uppreisnarmanna dæmdir til dauða og hálshöggnir 1854. Er leikstjórinn kominn af öðrum þeirra og því málið skylt. Myndin kostaði 6,6 miljónir evra og var að mestu tekin í Filmkamp-kvikmyndaverinu í Malsvelf nærri Tromsö. Það er því eðlilegt að myndin verði frumsýnd þar. Hún er samstarfsverkefni Rubicon Film & TV in co-production og Borealis Film. Þetta er fyrsta myndin sem er unnin í verinu og voru margir þátttakendur frá svæðinu þátttakaendur með einum eða öðrum hætti í verkefninu. Leikarar eru af ýmsu norrænu þjóðerni en Karl hefur áður unnið með Gaup í myndinni Misery Harbor frá 1999. Kalli fór beint úr kuldum norðursins til hita Miðjarðarhafs, en hann er að gera mynd með Katherine Bigalow í Jórdaníu um þessar mundir.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira