Erlent

Hvít Rússar hóta Moskvu

Forseti Hvíta Rússlands hótaði í dag að leggja flutningsgjald á olíu frá Rússlandi til Evrópu, ef Rússar standa fast á því að stórhækka verð á gasi og olíu til landsins. Rússar hafa undanfarin misseri átt í hörðum deilum við fyrrverandi aðilarríki Sovétríkjanna um orkuverð.

Rússar vilja að ríkin greiði sama verð og viðskiptavinir þeirra í Vestur-Evrópu. Því hafa lönd eins og Úkraína, Georgía og Hvíta Rússland tekið illa, og hótað gagnaðgerðum, eins og þeim að skrúfa fyrir rússneskt gas til Evrópu og taka flutningsgjöld af Rússum fyrir olíu- og gasleiðslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×