Osama bin Laden snýr aftur 19. febrúar 2007 11:21 Osama bin Laden, leiðtogi Al Kæda. MYND/AP
Æðstu leiðtogar Al Kæda eru búnir að endurheimta að mestu leyti stjórn sína yfir hryðjuverkasamtökunum, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Blaðið hefur þetta eftir bandarískum leyniþjónustumönnum, sem segja að bæði Osama bin Laden og næstráðandi hans Ayman al-Zawahri komi nú beint að stjórn samtakanna. Enginn veit hvar þessir tveir menn eru í felum en New York Times hefur eftir leyniþjónustumönnunum að þeir séu að byggja upp nýjar þjálfunarbúðir í Waziristan héraði í Pakistan. Þeim sem þar séu þjálfaðir sé ætlað að gera árásir bæði í Afganistan og á vesturlöndum. Þjálfunarbúðirnar eru ekki enn orðnar jafn stórar og vel búnar og búðirnar sem Al Kæda hafði í Afganistan meðan talibanar réðu þar ríkjum, en tíu til tuttugu menn eru í í hverjum búðum fyrir sig og eru þjálfaðir til sérstakra verkefna. Vegna stórsóknar í baráttunni gegn hryðjuverkum eftir árásirnar á New York riðlaðist yfirstjórn Al Kæda um skeið, en er nú aftur að taka við stjórntaumunum, samkvæmt þessum heimildum. Breska leyniþjónustan hefur rakið til Al Kæda áætlun um að sprengja í loft upp allt að tíu farþegaþotur á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna, á síðasta ári.
Erlent Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira