Erlent

Tvö þúsund manna mótmæli í Kaupmannahöfn

Frá mótmælum í gærkvöldi.
Frá mótmælum í gærkvöldi. MYND/AFP

Tvö þúsund manns ganga nú fylktu liði frá Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn að  Norðurbrú og krefjast þess að nýtt Ungdómshús verði reist á þeim slóðum í stað hússins umdeilda sem stóð við Jagtvejen og var rifið í vikunni. Mótmælin eru friðsamleg en lögregla hefur uppi mikinn viðbúnað.

Í sms-skeytum sem gengið hafa á milli stuðningsmanna hússins eru mótmælendur hvattir til að brenna Kaupmannahöfn til grunna. Nokkur mannsöfnuður var á Norðurbrú í nótt og handtók lögreglan 37 fyrir spellvirki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×