Táragasi beitt á sjónvarpsstöð 16. mars 2007 15:26 Óeirðirnar í Pakistan hafa nú staðið í viku.
Pakistanskir óeirðalögreglumenn réðust í dag inn í einkarekna sjónvarpsstöð og úðuðu þar táragasi, eftir að fréttastjórinn neitaði að hætta beinum útsendingum af óeirðum í höfuðborginni Islamabad. Mótmælin voru vegna þess að forseta hæstaréttar landsins var vikið úr embætti síðastliðinn föstudag. Sjónvarpsstöðin er vel staðsett í miðborg Islamabad, þar sem óeirðirnar hafa verið hvað mestar síðustu vikuna. Uppi á þaki hennar er sjónvarpsmyndavél sem notuð er til þess að sýna beint frá óeirðunum. Lögreglan krafðist þess að slökkt yrði á þessari myndavél. Iftikhar Chaudary, forseti hæstaréttar Pakistans nýtur mikillar virðingar í landinu og sakirnar sem á hann voru bornar voru mjög óljóst orðaðar. Chaudary er mjög sjálfstæður dómari og menn velta því fyrir sér hvort brottvikning hans sé vegna þess að hann kynni að vera andvígur því að Perves Musharraf, forseti héldi áfram embætti sínu sem yfirmaður heraflans, en samkvæmt stjórnarskránni á hann að láta af því embætti á þessu ári.
Erlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira