Njarðvík í undanúrslit 18. mars 2007 21:02
Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í körfubolta með öruggum útisigri á Hamar/Selfoss 86-60. Skallagrímur og Grindavík mætast í oddaleik í Borgarnesi eftir helgi eftir að Skallagrímur vann sigur í öðrum leik liðanna í Grindavík í kvöld 87-80. Jóhann Ólafsson var stigahæstur hjá Njarðvíkingum í kvöld með 19 stig og hitti úr 9 af 12 skotum sínum utan af velli. Brenton Birmingham skoraði 16 stig, Egill Jónasson 13 stig og Jeb Ivey skoraði 12 stig og gaf 8 stoðsendingar. Bojan Bojovic var eini leikmaður Hamars með aðeins 11 stig, Marvin Valdimarsson skoraði 9 stig og Bragi Bjarnason skoraði 8 stig. George Byrd skoraði aðeins 5 stig í leiknum og tók aðeins 4 skot allan leikinn. Hann hirti þó 10 fráköst. Njarðvíkingar nýttu 55% tveggja stiga skota sinna í leiknum en Hamar aðeins 37% sinna. Flake frábær í Grindavík Darrell Flake átti stórleik í Grindavík þegar hans menn í Skallagrími lögðu heimamenn. Flake skoraði 33 stig og hitti úr 13 af 16 skotum sínum og hirti auk þess 7 fráköst. Axel Kárason skoraði 19 stig og Dimitar Karadzovski skoraði 16 stig. Hjá Grindavík skoraði Jonathan Griffin 26 stig, Adam Darboe 21 stig og Jóhann Þorleifsson skoraði 20 stig - en fyrir Grindvíkinga munaði þó mest um að nafnarnir Páll Axel og Páll Kristinsson voru fjarri sínu besta í sóknarleiknum og skoruðu aðeins 11 stig samanlagt. Það voru einmitt þeir tveir sem fóru á kostum þegar liðið vann fyrsta leikinn í Borgarnesi - og þeir verða því að hrista annað eins fram úr erminni þegar liðin mætast á ný eftir helgina í hreinum úrslitaleik vestra.
Dominos-deild karla Mest lesið The Athletic valdi íslensku treyjuna þá ljótustu á EM í ár Fótbolti Kemur til varnar Arnari bróður sínum: „Nú er nóg komið“ Sport Partey ákærður fyrir nauðgun Fótbolti Á réttri leið eftir röð áfalla: „Sagði við Guðna að ég væri bara hætt“ Sport Portúgalinn Pedro Neto má taka sér frí: „Hann er mjög leiður“ Fótbolti EM í dag: Nú hitti skrattinn ömmu sína Fótbolti Eldræða Ása: „Fyrirsláttur hjá fólki að halda og tengja þetta“ Fótbolti Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Íslenski boltinn Átta mánaða gamall með Íslandi á EM Fótbolti Arnar hélt sér á brautinni í hálfmaraþoninu Sport Fleiri fréttir Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Sjá meira