Vilja ekki að hermenn hagnist persónulega 9. apríl 2007 15:52 Turney seldi sögu sína til dagblaðsins Sun og ITV1 og fékk um milljón pund fyrir. MYND/AFP
Breska varnarmálaráðuneytið ætlar sér að endurskoða reglur sínar varðandi það að gefa hermönnum og fyrrum starfsfólki leyfi til þess að selja sögur sínar til fjölmiðla. Mikil umræða varð um málið í Bretlandi í kjölfar þess að ákveðið var að leyfa sjóliðunum sem Íranar handtóku að selja fjölmiðlum sögur sínar. Faye Turney, konan sem var í hópnum, var ein þeirra sem seldi sögu sína. Hún gerði samning við ITV1 og dagblaðið Sun. Hermt er að hún hafi fengið allt að milljón pund fyrir. Ættingjar hermanna sem hafa látið lífið í Írak og Afganistan hafa gagnrýnt ákvörðun varnarmálaráðuneytisins. Móðir Eleanor Dlugosz, 19 ára stúlku sem lét lífið í Írak, sagði að dóttir sín hefði ekki viljað hagnast persónulega á reynslu sinni sem hermaður. Ef hún hefði tekið peninga fyrir að segja sögu sína hefði hún gefið þá til styrktarsamtaka. Ritstjóri Sun, Tom Newton-Dunn, hefur varið ákvörðun sína um að borga Turney fyrir að segja sögu sína. „Hún hefur fullan rétt á því að gera þetta. Við búum í frjálsu landi. Faye lenti í ótrúlegri atburðarás, sem augljóslega er mjög áhugaverð." Turney hefur varið ákvörðun sína og segist ætla að gefa ákveðna prósentu af upphæðinni til skipverja á HMS Cornwall og fjölskyldna þeirra.
Erlent Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira