Skelfilegt kjarnorkuslys vofir yfir Evrópu Óli Tynes skrifar 1. júní 2007 16:27 Tugir rússneskra kjarnorkukafbáta eru að ryðga niður á Kola skaga.
Gríðarstórir geymar fullir af notuðum eldsneytis-stjórnstöngum úr vélum Rússneskra kjarnorkukafbáta geta sprungið hvenær sem er. Þeir eru aðeins 50 kílómetra frá landamærum við Noreg. Það yrði hrein kjarnorkumatröð, margfallt verri en kjarnorkuslysið í Chernobyl á sínum tíma. Geislavarnir Rússlands, Rusatom, skiluðu á síðasta ári skýrslu um kjarnorkuúrgang á Kola skaga. Þar eru tugir rússneskra kjarnorkukafbáta að ryðga niður. Skýrslan er biksvört. Þar segir að hættan á óstýranlegri keðjuverkun sé margfallt meiri en hingað til hefur verið talið. Skýrslunni var haldið leyndri en komst í hendurnar á umhverfisstofnuninni Bellona, sem hefur gert hana opinbera. Á Vesturlöndum hefur lengið verið vitað að kjarnorkuúrgangur á svæðinu milli Kirkjuness í Noregi og Murmansk í Rússlandi væri hættulegur. Talað var um mögulega stórfellda hættu fyrir Noreg. Bellona túlkar skýrslu Rusatom þannig að ástandið sé miklu alvarlegra en svo. Jonas Störe utanríkisráðherra Noregs segir að norsku ríkisstjórninni hafi verið kunnugt um vandann. Ekkert nýtt sé í upplýsingum Bellona. Bellona segir aftur að það sé nýtt að sjór sé farinn að leka inn í geymana, sem gerbreyti ástandinu. Samtökin spyrja hvernig í ósköpunum það megi vera að ríkisstjórnin hafi vitað um þessa auknu hættu án þess að gera þjóðinni grein fyrir henni.
Erlent Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Innlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira