Leikjavísir

Wii selst betur en PS3

Viðskiptavinir í röð til þess að kaupa Wii í Nintendo World búðinni í Rockefeller Center í New York. Þar seljast nýjar sendingar strax upp.
Viðskiptavinir í röð til þess að kaupa Wii í Nintendo World búðinni í Rockefeller Center í New York. Þar seljast nýjar sendingar strax upp. MYND/AP

Nintendo Wii leikjatölvan hefur selst betur en keppinauturinn PlayStation 3 í Japan. Japanskt útgáfufélag segir að sex Wii tölvur hafi selst jafn hratt og ein PS3 tölva í júní.

Þrátt fyrir að Wii hafi komið á markað í lok síðasta árs svarar framboð ekki eftirspurn. Enn myndast langar raðir í búðum þegar nýjar sendingar koma í hús.

Tölur benda til þess að bilið sé að stækka. Í apríl seldist Wii fjórar á móti einni PS3 og í maí fimm á móti einni PS3. Salan á Wii hefur einnig gengið mjög vel í Bandaríkjunum.

Wii er framúrstefnuleg leikjatölva með hreyfiskynjurum í fjarstýringunni sem auka upplifun notandans. PS3 er nýjasta og öflugasta útgáfan af PlayStation frá Sony.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.