Powell reyndi að telja Bush ofan af Íraksstríði 9. júlí 2007 11:57 Bush og Powell. MYND/AP
Colin Powell, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt frá því að hann reyndi að telja George W. Bush, bandaríkjaforseta, ofan af því að ráðast inn í Írak. Powell segist þá einnig telja að bandaríski herinn geti ekki komið á stöðugleika í landinu. „Ég reyndi að forðast þetta stríð," sagði Powell á hátíð í Aspen um helgina. „Ég skýrði út fyrir honum afleiðingarnar af því að ráðast inn í land á þessum slóðum," bætti hann síðan við. Hann segir að nú ríki borgarastyrjöld og telur að eina leiðin til þess að útkljá hana sé með átökum. Fyrr í morgun var sagt frá því að Bush væri að íhuga að tilkynna áætlun um hvenær hermennirnir myndu yfirgefa landið. Einnig að fækka hermönnum á þeim svæðum þar sem flestir láta lífið. Ljóst þykir því að raddir efasemdarmanna um stríðið í Írak séu farnar að ná eyrum ráðamanna í Washington. Fjölmargir þingmenn repúblikana hafa einnig komið fram í fjölmiðlum undanfarna daga og sagt að þeir geti ekki lengur sætt sig við að bandarískir hermenn séu að deyja í Írak. Í vikunni fara fram umræður um stöðu stríðsins í Írak í fulltrúadeild þingsins. Líklegt er talið að einhverjir þingmenn repúblikana eigi eftir að styðja við kröfur demókrata ef Bush kynnir ekki áætlun um að fækka hermönnum í Írak sem fyrst.
Erlent Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira