Erlent

Hús á tíu milljarða

Stórhýsi í Beverly Hills í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur verið auglýst til sölu á litlar 165 milljónir dollara eða um tíu milljarða íslenskra króna. Heimilið var byggt á þriðja áratug síðustu aldar og var í eigu fjölmiðlakóngsins Williams Randolph Hearst.

Það hefur 29 svefnherbergi, þrjár sundlaugar, tennisvelli, kvikmyndasal og skemmtistað. Sumir gætu kannski munað eftir því úr myndinni Guðföðurnum.

Smellið hér til þess að sjá loftmyndir af húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×