Þjóðverjar hatast við Tom Cruise Óli Tynes skrifar 26. júlí 2007 09:52
Tom Cruise hefur orðið fyrir heiftarlegum árásum opinberra aðila í Þýskalandi. Þar hefur hann verið við tökur á kvikmynd um tilræðið við Adolf Hitler í júlí árið 1944. Cruise hefur meðal annars verið líkt við Jósef Göbbels, áróðursmeistara Hitlers. Óánægja Þjóðverja virðist eiga sér trúarlegar rætur. Í myndinni leikur Cruise Claus von Stauffenberg sem fór fyrir hópnum sem reyndi að ráða Hitler af dögum með sprengju. Bæði þýska varnarmálaráðuneytið, þýskir þingmenn og ættingjar von Stauffenbergs hafa harðlega gagnrýnt gerð myndarinnar og Cruise sérstaklega. Að því er virðist vegna aðildar hans að Vísindakirkjunni svokölluðu. Þetta hefur meðal annars leitt af sér að kvikmyndafólkinu var bannaður aðgangur að ýmsum sögulegum stöðum í Berlín. Nú hefur þýska mótmælendakirkjan bæst í hóp gagnrýnenda. Thomas Gandow, talsmaður kirkjunnar segir að Vísindakirkjan sé einræðissamtök og að Tom Cruise sé hennar Göbbels. Gandow bætir því við að kvikmyndin hafi sama áróðursgildi fyrir Vísindakirkjuna og Ólympíuleikarnir í Berlín árið 1936 höfðu fyrir nazista.
Erlent Mest lesið Árni Grétar Futuregrapher látinn Innlent Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Innlent Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Innlent Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Innlent Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Innlent Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi Innlent „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Innlent Þrír menn leiddir frá borði Play-flugvélar Innlent Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Innlent Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Innlent Fleiri fréttir Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Látin 116 ára að aldri Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað Tvær heimagerðar sprengjur fundust á svæðinu Árásarmaðurinn skotinn til bana Tíu látnir eftir að bíl var ekið á fólk í New Orleans Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Sjá meira