Erlent

Öflugur jarðskjálfti í Vanuatu

Upptök skjálftans voru 45 kílómetra suðaustur af Santo
Upptök skjálftans voru 45 kílómetra suðaustur af Santo MYND/AFP

Jarðskjálfti sem mældist 7.2 á richter varð í dag 45 kílómetra suðaustur af eyjunni Santo sem tilheyrir Vanuatu eyjaklasanum.

Upptök skjálftans voru á 172 kílómetra dýpi í Kyrrahafinu um 1.996 kílómetra norðaustur af Brisbane í Ástralíu. Ekki er talið að hætt sé á flóðbylgju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×