Slapp lítið slasaður úr flugslysi Guðjón Helgason skrifar 22. ágúst 2007 12:20
Tvítugur Kanadamaður vann frækilegt afrek þegar hann bjargaði Íslendingi og kanadískri konu úr flaki flugvélarinnar sem hrapaði í Kanada á laugardaginn. Faðir Íslendingsins segir hann hafa sloppið vel. Annar Íslendingur fórst í slysinu en hann flaug flugvélinni. Flugvélin sem fjórmenningarnir voru í steyptist til jarðar í skóglendi nærri Squamish í Kanada. Þar hékk flakið um einum metra frá jörðu í trjám. Íslendingurinn Guðni Rúnar Kristinsson flaug henni - en hann lést í slysinu. Björgunarþyrlur komu að slysstaðnum um fjórum klukkustundum eftir að Cessna 172 flugvélinni hlekktist á. Björgunarflugmaður sem þekkir til staðhátta segir líklegast að flugmaðurinn hafi flogið of lágt til að ná að hækka flugið áður en hann lenti í trjánum. Íslendingurinn Davíð Jónsson var í vélinni og var í fyrstu talið að hann hefði hlotið alvarleg höfuðmeiðsl. Svo reyndist ekki vera. Jón Jónsson, faðir hans, segir hann hafa sloppið vel miðað við hvernig allt leit út í fyrstu. Hann hafi lærbrotnað en brotið hafi verið hreint. Mikið hafi blætt úr höfði Davíðs og því talið að hann væri illa meiddur á höfði. Síðar hafi komið í ljós að um yfirborðs sár hafi verið að ræða. Jón segir son sinn líkast til losna af sjúkrahúsi í dag en hann þurfi að vera á hækjum í sex vikur og fara í sjúkraþjálfun. Tvítugur Kanadamaður - vinur Davíðs og Guðna Rúnars - bjargaði Davíð og nítján ára kanadískri stúlku úr vélinni eftir slysið og hlúði að þeim þar til björgunarmenn komu á vettvang.
Erlent Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Sjá meira