Leikjavísir

PS3 tekur upp úr sjónvarpi

Valur Hrafn Einarsson skrifar
Hægt verður að taka upp og spila sjónvarpsútsendingar með PS3
Hægt verður að taka upp og spila sjónvarpsútsendingar með PS3 MYND/SONY

Sony kynnti í vikunni nýja viðbót við Playstation 3 leikjatölvuna, PlayTV, sem breytir tölvunni í upptökutæki. Tækið gerir notendum kleift að taka upp og spila stafrænar sjónvarpsútsendingar í gegnum leikjatölvuna.

Upptekið efni er svo hægt að senda úr PS3 tölvunni yfir í PSP handleikjatölvuna með þráðlausu netsambandi eða með USB snúru. Tækið mun fyrst um sinn aðeins vera í boði fyrir Evrópubúa. Áætlað er að það komi á markað snemma á næsta ári.

,,Tilkoma PlayTV mun auka enn frekar á skemmtanagildi PS3 og gerir hana að fádæma góðum kosti fyrir alla fjölskylduna". sagði David Reeves, forstjóri Sony Computer Entertainment í Evrópu í fréttatilkynningu frá Sony.

Fréttatilkynning Sony um PlayTV






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.