Erlent

Barinn í beinni

Guðjón Helgason skrifar

Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbí leik fyrir utan leikvang í Melborun þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Hópur manna réðst þá að fréttamanninum, Ben Davis, og gekk í skrokk á honum.

Davis tókst að forða sér og slapp hann með smávægilegar skrámur. Árásarmennirnir komust undan en lögregla hefur birt myndir af þeim - enda árásin gerð í beinni útsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×