Fallni tamílaleiðtoginn hitti marga Íslendinga Óli Tynes skrifar 2. nóvember 2007 15:11 S.P. Tamilselvan og Erik Solheim, í Sviss. MYND/AP
Tamílaleiðtoginn sem Bjarni Vestmann heilsaði á Sri Lanka á dögunum var einn af þeim Tamílum sem Norðmaðurinn Erik Solheim átti mest samskipti við þegar hann var að reyna að koma á friði í landinu. Solheim var árið 2000 skipaður sérstakur sáttasemjari Noregs. Og S.P. Tamilselvan var aðal samningamaður Tamíl tígranna. Hann féll í loftárás stjórnarhers Sri Lanka á höfuðstöðvar Tamíl tígra í morgun. Solheim var einn af höfundum vopnahlésins sem var undirritað árið 2002. Hann átti marga fundi með Tamilselvan og fór vel á með þeim, eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Hún var tekin í Sviss fyrir nákvæmlega einu ári. Stjórnvöld á Sri Lanka urðu auðvitað að sætta sig við að Erik Solheim talaði við Tamíla, en brugðust ókvæða við þegar Bjarni hitti leiðtogann. Það var reyndar alveg óvart. Bjarni var á ferð með öðrum Norðurlandabúum og vissi ekki að til stæði að hitta Tamilselvan. Eftir fundinn varð svo mikið uppnám að ákveðið var að senda Bjarna til annarra starfa fyrir utanríkisráðuneytið. Fleiri Íslendingar hittu Tamilselvan, meðal annars Teitur Þorkelsson, sem var í íslensku friðargæslunni á Sri Lanka 2002-2003.
Erlent Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Fleiri fréttir Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan. Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Sjá meira