Heilsa

Bannað börnum

Litríkt sælgæti er vissulega heillandi fyrir barnsaugað, en nú er bannað að auglýsa sælgæti í breskum barnatímum í sjónvarpi.
Litríkt sælgæti er vissulega heillandi fyrir barnsaugað, en nú er bannað að auglýsa sælgæti í breskum barnatímum í sjónvarpi.
Blátt bann við auglýsingum á skyndibita í bresku barnasjónvarpi tók gildi um áramótin.

Í nýju reglugerðinni liggur strangt bann við auglýsingum á óhollum mat og drykk í kringum barnaefni sem ætlað er börnum yngri en sextán ára, en til þessa hefur bannið einungis náð til barna sem eru tíu ára og yngri.

Auglýsingabannið nær til allra matar- og drykkjarvara sem auðugar eru af fitu, salti og sykri, og er liður í viðleitni stjórnvalda til að sporna við offitu barna á Bretlandi.

Barnasjónvarpsstöðvum verður leyft að innleiða bannið í áföngum til ársloka 2008, en árangur auglýsingabannsins verður skoðaður á hausti komanda.- þlg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×