Fullvaxta menn, tólf ára enn 4. september 2008 03:45 Litlir í anda Reilly og Ferrell leika stjúbræðurna óborganlegu í Stepbrothers.
Gamanmyndaáhugamenn vita að þegar Will Ferrell og John C. Reilly mætast er voðinn vís. Seinast mættust þeir í Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby, árið 2006 og veltu bíógestum úr sætum sínum með einstakri grínblöndu. Mætast þeir að nýju í Stepbrothers, sem frumsýnd er á föstudaginn. Brennan Huff (Ferrell) er þrjátíu og níu ára karlmaður sem hefur aldrei farið að heiman frá fráskilinni móður sinni. Dale Doback (C. Reilly) er fertugur og hefur heldur ekki flutt að heiman heldur býr með föður sínum. Báðir eru atvinnulausir. Móðir Brennans hittir föður Dales, þau verða ástfangin, giftast og flytja heim til Doback-feðganna. Synirnir tveir eiga þar með engra kosta völ en að deila herbergi, eða yfirgefa heimili sitt. Þeir hata hvor annan til að byrja með en komast að því að þeir eru ekki svo ólíkir. Báðir eru þeir tólf ára stráklingar fastir í fullvaxta líkömum og lifa í eigin heimi. Eftir að þeir verða bestu vinir ákveða foreldrar þeirra að vísa þeim á dyr. Allt í einu verða þessir litlu strákar að fullorðnast. - kbs
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira