Félag Existu kaupir skókeðju á eitt pund 23. maí 2008 09:58 Ein af verslunum JJB Sports.
Stjórnendur bresku íþróttavöruverslunarinnar JJB Sports greindu frá því í gærkvöldi að þeir hefðu keypt bresku skóverslunina Qube Footwear. Kaupverð nemur litlu einu bresku pundi, jafnvirði tæpra 144 íslenskra króna.Seljandi verslunarinnar er fjárfestingarfélagið West Coast Capital, félag Tom Hunters, ríkasta manns Skotlands. Hunter er jafnframt stór hluthafi í eignarhaldsfélaginu Jötunn Holding sem situr á rúmum 4,8 prósenta hlut í Glitni.Breskir fjölmiðlar hafa eftir Hunter í dag að salan sé liður í uppstokkun á eignasafni West Coast Capital.Qube hefur gert skurk í rekstrinum og lokað nokkrum fjölda verslana. Eftir standa 22 víðs vegar um Bretland. Félagið tapaði 6,1 milljón punda, jafnvirði 876,5 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári.Exista keypti 29 prósenta hlut í JJB Sports á síðasta ári í félagi við Chris Ronnie, forstjóra verslunarinnar. Hvor um sig á um 14 prósenta hlut í versluninni.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira