Viðskipti erlent

Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til

Samúel Karl Ólason skrifar
Warner Bros og Paramount hafa verið mjög fyrirferðarmikil í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum um árabil.
Warner Bros og Paramount hafa verið mjög fyrirferðarmikil í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum um árabil. EPA

David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi.

Þetta kemur fram í færslu Ellison á samfélagsmiðlum, þar sem hann segir frá breytingunni sem hann ætlar að gera og birtir myndband þar sem búið er að taka saman senur úr mörgum af helstu kvikmyndum fyrirtækjanna sem eru að sameinast og sjónvarpsefni þeirra.

Færslan hefst á orðunum:

„Það sem einu sinni var tindurinn er nú eingöngu upphafið.“

Í færslunni segir Ellison, sem er sonur auðjöfursins Larry Ellison, að með því að breyta nafninu sé ekki verið að endurskrifa söguna, það sé verið að betrumbæta fyrirtækin og bæta rekstur kvikmynda- og tökuvera þeirra.

David Ellison og eiginkona hans við Hvíta húsið á dögunum.AP/Carolyn Kaster

„Við völdum þetta nafn af nokkum mikilvægum ástæðum,“ segir Ellison. Hann segir að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að varðveita hvað gerði þessi kvikmyndafyrirtæki svo táknræn. Haldið yrði í gildi fyrirtækjanna og reynt að tryggja að annað muni ekki skyggja á hitt þegar þau verða komin undir sama hatt.

„Við höfum stór markmið fyrir Skydance og ætlum að sækja þau af ástríðu, hugmyndaauðgi og vilja til að taka skynsamlega áhættu.“

Þá segir Ellison að i senn verði bæði fyrirtækin heiðruð og að þau muni fá áfram tækifæri til að vaxa.

„Við gætum ekki verið spenntari fyrir því sem við munum skapa saman.“

Verður risi á markaðnum

Yfirtaka Paramount á Warner hefur staðið yfir um nokkuð skeið og hafa Ellison og félagar þurft að komast gegnum ýmsa tálma á þessu ferli. Stjórn Warner vildi upprunalega frekar selja fyrirtækið til Netfliix og þá hafa dómstólar einnig staðið í vegi samrunans.

Kaup Paramount Skydance á Warner Bros Discovery hljóða upp á hundrað og ellefu milljarða dala eða um fjórtán billjónir íslenskra króna.

Með yfirtöku á Warner Bros verður Paramount eitt stærsta aflið í Hollywood og bætir fréttastöðinni CNN, sjónvarpsstöðvunum HBO, TBS, TNT, TCM, auk kvikmyndaveranna DC Studios og New Line Cinema við núverandi eignasafn sitt. Þar á meðal eru Paramount Pictures, CBS, Showtime og Nickelodeon.

Sjá einnig: Lofar að koma böndum á CNN

Í síðustu viku var svo gert samkomulag í dómsáli á annars tug ríkissakóknara í Bandaríkjunum vegna samrunans. Þá samþykkti Ellison að fjárfesta ríflega í innlendri framleiðslu á næstu fimm árum og að fjármagan þjálfunarnámskeið innan kvikmynda- og sjónvarpsgeirans.


Tengdar fréttir

Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu

Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann.

Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur

Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna.

Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros

Emma Thompson, Pedro Pascal, Jane Fonda og Joaquin Phoenix eru meðal þúsund starfsmanna innan Hollywood sem undirritað hafa opið bréf til að mótmæla samruna Paramount og Warner Bros. Discovery.

Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros.

Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×