Hjartaáföllum fækkaði við lýsisgjöf Óli Tynes skrifar 2. september 2008 13:57
Umfangsmikil rannsókn sem gerð var á hjartadeildum 357 sjúkrahúsa á Ítalíu bendir til þess að eitt hylki af Omega-3 fiskilýsi á dag gagnist hjartasjúklingum. Rannsóknin náði til sjöþúsund hjartasjúklinga sem í fjögur ár fengu eitt lýsishylki á dag. Helmingurinn fékk raunar plathylki. Allir sjúklingarnir fengu þar að auki hefðbundna meðferð og lyf. Niðurstaðan var sú að þeir sem fengu alvöru Omega-3 hylki dóu síður úr hjartaáfalli. Munurinn var níu prósent. Hættan á hjartaáfalli sem ekki leiddi þó til dauða minnkaði um átta prósent. Niðurstaða rannsóknarinnar er birt í nýjasta hefti læknaritsins The Lancet. Danska blaðið Jyllandsposten segir frá þessu og getur þess að aðrar rannsóknir hafi leitt í ljós að lýsi sé einnig gott fyrir heilann. Þannig hafi lýsisgjöf merkjanlega góð áhrif á börn sem haldin eru ofvirkni og athyglisbresti og eins á alzheimer sjúklinga. Þá hafi námsárangur barna batnað við lýsisgjöf.
Erlent Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira