Leikjavísir

Þúsund keyptu leik

grand theft auto IV Ellefti leikurinn í seríunni fékk góðar viðtökur á miðnæturopnuninni.
grand theft auto IV Ellefti leikurinn í seríunni fékk góðar viðtökur á miðnæturopnuninni.

Um eitt þúsund manns gerðu sér ferð í Elko og BT í Skeifunni aðfaranótt þriðjudags til að festa kaup á tölvuleiknum Grand Theft Auto IV. "Þetta gekk glimrandi vel. Þegar nördarnir koma saman er aldrei neitt þras,“ segir Sverrir Bergmann tölvuleikjagúrú. DJ Danni Deluxe, Dóri DNA og Bent héldu uppi góðri stemningu á þessari miðnæturopnun auk þess sem pitsur voru í boði fyrir gesti.

Sverrir segir að leikurinn hafi fengið hæstu einkunn sem hann hafi vitað um til þessa, eða rúmlega 99%. „Það lítur allt út fyrir að þetta sé besti leikur sem hefur verið gerður,“ segir hann og hlær. Leikurinn er sá ellefti í Grand Theft Auto-seríunni og telst vera sá allra flottasti hingað til.

Að sögn Sverris hefur einn leikur selst meira en Grand Theft Auto IV hérlendis á svo skömmum tíma, eða Burning Crusade, sem er uppfærsla fyrir hasarleikinn World of Warcraft. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.