Dálítið svakaleg mistök Óli Tynes skrifar 16. september 2008 16:56 Grafíkskiltið svakalega.
Danska sjónvarpsstöðin TV2 nældi sér líklega í gær í mestu mistök sem gerð verða í sjónvarpsútsendingum þar í landi á þessu ári. Fréttamaðurinn Jesper Steinmetz var þá í beinni útsendingu frá New York að segja frá því nýjasta á peningamarkaðinum. Allt í einu kom borði neðst yfir skerminn með nýjustu fréttum. Á borðanum stóð: „Fogh biður bandarísku þjóðina skilyrðislausrar afsökunar á tilræðinu við Bush." Þar var auðvitað vísað til Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana. Dönum brá nokkuð í brún því enginn þeirra minntist þess að hafa reynt að kála forseta Bandaríkjanna. Skýringin var líka önnur. Í grafíkdeild sjónvarpsstöðvarinnar voru menn eitthvað að prófa tölvur og bjuggu til þetta grafikskilti sem sýnishorn. Það átti auðvitað aldrei að fara í loftið. Andrúmsloftið á grafíkdeild TV2 mun hafa verið venju fremur lágstemmt í dag.
Erlent Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira