Nauðsynlegt að ná að púsla þessu saman í dag 25. maí 2008 15:44 Rakel Dögg átti fínan leik í dag
Rakel Dögg Bragadóttir var markahæst í báðum æfingaleikjum íslenska landsliðsins gegn danska liðinu Kolding um helgina. Hún á von á mjög erfiðu verkefni um næstu helgi þegar liðið mætir Rúmenum í umspili um sæti á EM. Íslenska landsliðið tapaði fyrir Kolding í gær en sneri við blaðinu í Laugardalshöllinni í dag og vann þriggja marka sigur, 26-23 eftir að hafa verið yfir 12-11 í hálfleik. Rakel Dögg Bragadóttir var markahæst með 6 mörk og þær Dagný Skúladóttir og Sólveig Lára Kjærnested skoruðu 5 hvor. Þá var Berglind Hansdóttir frábær í markinu og varði 18 skot. Rakel Dögg var ánægð með leik íslenska liðsins í gær og fagnaði því að liðið næði góðum sigri sem veganesti í umspilsleikinn gegn Rúmenum um næstu helgi. "Leikurinn í gær var þokkalegur en það vantaði bara að við kláruðum hann. Það vantaði þessa aukalegu baráttu sem var til staðar í dag. Vörnin og markvarslan var líka frábær í dag og það munar mikið um það. Þetta danska lið er mjög sterkt, en við erum líka að fara að mæta einni sterkustu þjóð í heimi um næstu helgi þannig að það var nauðsynlegt fyrir okkur að ná að púsla okkur saman í dag," sagði Rakel Dögg í samtali við Vísi. "Ég er mjög spennt fyrir þessum leik gegn Rúmenum, en við vitum að mótherjinn er gríðarlega sterkur. Við verðum litla liðið í þessum leik en vitum að við getum gert góða hluti gegn þeim á góðum degi. Baráttan, vörnin og markvarslan sem var til staðar í dag gefur okkur gott veganesti í leikinn á sunnudaginn, en rúmenska liðið er skipað stórum, sterkum og fljótum leikmönnum með fáa veikleika. Þetta lið er búið að vera á topp fjögur á síðustu stórmótum ef ég man rétt og það er því ljóst að þetta verður mjög erfitt," sagði Rakel Dögg.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira