Ísland steinlá í Skopje 8. júní 2008 20:02 Guðjón Valur skoraði 9 mörk í kvöld
Íslenska landsliðið í handbolta tapaði með átta marka mun fyrir Makedóníu 34-26 ytra í fyrri leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslenska liðið var langt frá sínu besta í kvöld. Leikurinn var í járnum framan af fyrri hálfleik en í stöðunni 8-8 dró í sundur með liðunum. Makedónar höfðu yfir í hálfleik 18-13 og var sigri þeirra aldrei ógnað eftir það. Sóknarleikur íslenska liðsins var skelfilegur í síðari hálfleik og ef ekki hefði verið fyrir ágæta markvörslu Birkis Ívars Guðmundssonar í markinu hefðu möguleikar íslenska liðsins fyrir síðari leikinn líklega verið litlir sem engir. Markvörður makedónska liðsins gerði íslensku strákunum lífið einstaklega leitt í dag og varði í kring um 25 skot - nokkur þeirra úr dauðafærum. Þá nýttu strákarnir dauðafærin illa og áttu nokkur skot í markstangirnar. Skyttur makedónska liðsins áttu huggulegan dag og skoruðu hvert markið á fætur öðru utan af velli. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu og skoraði 9 mörk, flest þeirra í fyrri hálfleik. Ólafur Stefánsson skoraði 6 mörk og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Vignir Svavarsson 3 hvor. Róbert Gunnarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Sigfús Sigurðsson, Arnór Atlason og Alexander Petersson skoruðu eitt mark hver. Af þessum úrslitum má dæma að íslenska liðsins bíður gríðarlega erfitt verkefni í síðari leik liðanna hér heima í næstu viku, en þar verða strákarnir að vinna með 9 mörkum til að komast á HM.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira