Myndaði mömmu í rúminu með kærastanum Óli Tynes skrifar 12. janúar 2008 15:48 Mömmu var nokkuð brugðið.
Heitasta myndin á netinu þessa dagana er frá hinni 22 ára gömlu bresku stúlku Shelley Buddington. Hún varð svo reið þegar hún kom að kærastanum sínum og móður sinni í rúminu, að hún smellti af þeim mynd með símanum sínum og setti hana á Facebook sem hún heldur úti. Shelley vinnur á ölkrá og hafði sloppið úr vinnunni fyrr en hún átti von á. Hún ákvað að koma við hjá mömmu til þess að spjalla. Illur grunur vaknaði hjá Shelley þegar hún kom inn í anddyrið á húsinu hennar mömmu og sá þar Timberland stígvél númer 9, sem hún kannaðist vel við. Hinn illi grunur styrktist þegar hún heyrði torkennileg hljóð úr svefnherbergi móður sinnar. Ja, kannski ekkert sérlega torkennileg. Hún kíkti varlega inn og sá þar mömmu sína og kærastann í heitum atlotum. Öskureið tók hún símann sinn, stillti sér upp í gættinni og smellti mynd rétt í þann mund sem þau sáu hana. Árangurinn má sjá á meðfylgjandi mynd, þar sem mamma geysist fram úr rúminu til þess að reyna að stöðva myndatökuna. Mamman, hin 43 ára gamla Lesley Buddington og kærastinn Andrew Blay eru á góðri leið með að verða þekktustu persónur Bretlandseyja. Og eru ekkert sérlega ánægð með það. Shelley er slétt sama.
Erlent Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Fleiri fréttir Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Sjá meira