Sækir um pólitískt hæli Guðjón Helgason skrifar 16. febrúar 2008 18:48
Einn kosningastjóra stjórnarandstöðunnar í Kenýa hefur sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður á Íslandi. Vegabréfsáritun hans rennur út á mikvikudaginn, en hann segist vera á aftökulista yfirvalda í Kenýa. Paul Ramses Oduor, einn kosningastjóra stjórnarandstöðunnar í Kenýa, er landflótta á Íslandi vegna mannskæðra átaka sem blossuðu upp eftir umdeildar forsetakosningar í Kenýa í desember. Hann segist vera á aftökulista stjórnvalda. Hann styður Raila Odinga, stjórnarandstöðuleiðtoga, sem hefur sakað Mwai Kibaki forseta um að hafa rænt kosningunum. Paul valdi Íslands vegna tengsla í gegnum störf sín fyrir ABC barnahjálpina í Naíróbí. Hann hefur nú sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður á Íslandi. Vegabréfsáritun Odour gildir fram á miðvikudag en hann segist hafa fengið þær upplýsingar að honum verði ekki vísað úr landi á meðan umsókn hans sé til meðferðar. Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur reynt að miðla málum í Kenýa og sagði í gær að óháð nefnd ætti að fara yfir úrslit konsinganna. Leiðtogar heims tala um samsteypustjórn sem lausn á deilunni. Oduor segir að til skemmri tíma gæti það dugað en en ekki til lengri tíma. Á árum áður hafi þingmenn verið myrtir og fólk framið morð án refsingar og ekkert gert. Auk þess yrði Kibaki enn við völd.
Erlent Fréttir Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Fleiri fréttir Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Sjá meira