Abbas hættur friðarviðræðum við Ísraela Óli Tynes skrifar 2. mars 2008 12:01 Ísraelar hafa beitt bæði orrustuvélum og fótgönguliði á Gaza ströndinni.
Um eitthundrað manns hafa fallið í átökum Ísraela og Palestínumanna undanfarna daga. Þetta eru hörðustu átök sem hafa orðið lengi og þau stefna friðarferlinu í verulega hættu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt neyðarfund um málið í dag, að beiðni Palestínumanna og stuðningsríkja þeirra. Að honum loknum fordæmdi Ban Ki-moon framkvæmdastjóri samtakanna eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael. Hann sagði að þær væru tilgangslaus hryðjuverk sem stefndu ísraelskum almenningi í hættu og færðu palestinskum almenningi aðeins þjáningar. Framkvæmdastjórinn sagði einnig að Ísraelar hefðu vissulega rétt til þess að verja sig. Hinsvegar væru viðbrögð þeirra ekki í neinu samræmi við tilefnið. Mikið mannfall hefði orðið meðal óbreyttra borgara og þar á meðal hefðu börn látið lífið. Ísraelar yrðu að fara að alþjóðalögum sem banna slíkar hóprefsingar. Ísraelar segja hinsvegar að þeir muni herða aðgerðir sínar á Gaza ef eitthvað verði. Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels sagði að hann hefði sent Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýr skilaboð. Ísraelar gætu einfaldlega ekki sætt sit við að sitja aðgerðarlausir undir eldflaugahríð frá Gaza ströndinni. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna tilkynnti svo rétt fyrir hádegi að hann væri hættur friðarviðræðum við Ísraela vegna árása þeirra á Gaza.
Erlent Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Fleiri fréttir Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Sjá meira